Upplýsingar í samfélagsskýrslunni eru unnar af starfsfólki bankans á ýmsum sviðum en utanaðkomandi ráðgjafi var fenginn til að yfirfara upplýsingagjöf skýrslunnar með tilliti til þess að hún uppfyllti kröfur GRI Standards.1 Árið 2019 var ráðinn til starfa sérfræðingur í samfélagsábyrgð2 í 50% starfshlutfall sem ritstýrir og hefur yfirumsjón með skýrslugerðinni.
Tilvísunartafla sem fylgir skýrslunni skýrir að hve miklu leyti grein er gerð fyrir hverju viðmiði. Um sum viðmiðanna er fjallað ítarlega í skýrslunni á meðan einungis er gerð grein fyrir öðrum í tilvísunartöflunni. Í þeim tilfellum þar sem ekki er að fullu gerð grein fyrir ákveðnum vísum stafar það af því að upplýsingar vantar eða þær eru ekki samanburðarhæfar. Til að forðast endurtekningar vísar tilvísunartaflan til annarra miðla og skýrslna bankans þar sem við á, vegna upplýsinga um einstök viðmið.
Rekja má innleiðingu samfélagsábyrgðar í Landsbankanum með því að lesa eldri samfélagsskýrslur bankans. Við efnistök og afmörkun skýrslunnar var litið til eftirfarandi atriða og lögð er áhersla á starfsemi Landsbankans án dótturfélaga, nema annað sé tekið fram.
Allar upplýsingar í skýrslunni eiga við um almanaksárið 2019. Landsbankinn hvetur þá sem kynna sér efni skýrslunnar til að senda bankanum ábendingar um hvaðeina sem betur má fara í þeim hluta starfseminnar sem snýr að samfélagsábyrgð, sem og ábendingar um úrbætur á framsetningu skýrslunnar.
1. Finnur Sveinsson, sérfræðingur í samfélagsábyrgð.
2. Aðalheiður Snæbjarnardóttir, sérfræðingur í samfélagsábyrgð.